Skatepark (hlaupahjóla, hjólabretta og bmx leiksvæði)

Skatepark (hlaupahjóla, hjólabretta og bmx leiksvæði)

Hugmyndin byggir á að setja upp leiksvæði með römpum og railum fyrir alla þá sem að hafa áhuga á því að leika sér á hlaupahjólum, hjólabrettum og bmx hjólum. Hægt er að setja upp mismunandi brautir þannig að allir aldurshópar geti haft gaman af.

Points

Þegar börn eldast þá fara þau minna og minna út að leika sér, og hanga oft inni í tölvunni. En þar sem hljópahjól, hjólabretti og bmx hjól verða sífellt vinsælli hjá börnum og unglingum, gefur það augaleið að ef sérstök svæði eru til þar sem þau geta bæði leikið sér og æft ýmis trix er hægt að fá þau til að eyða meiri tíma úti og hreyfa sig. Skatepörk eru til í sumum hverfum en þar sem erfitt getur verið fyrir börn að komast á þau vegna vegalendar, er nauðsynlegt að hafa þau í hverju hverfi.

Þessi hugmynd hefur verið færð í Þín Rödd í ráðum borgarinnar og hægt er að finna hana hér: https://thin-rodd.betrireykjavik.is/post/9095

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information