Bæta lýsingu í Nýlendugarði, róló milli Vesturgötu og Nýlendugötu. Setja upp vatnspóst fyrir íþróttafólk og einfalda klifurgrind sem nýtist bæði krökkum og fullorðnum í leik og líkamsrækt. (t.d. http://krumma.is/leiktaeki/krumma-sport/817-klifurtaeki/)
Íbúar í hverfinu hafa tekið garðinn að sér og nýta lítinn hverfisstyrk nú í að betrumbæta og fegra umhverfið í garðinum sjálfir. Fyrir veturinn þarf að bæta lýsingu, einnig myndi vatnspóstur gera garðinn aðlaðandi fyrir íþróttafólk og klifurgrind myndi hvetja til hreyfingar. Allt þetta myndi gera herslu muninn í að gera garðinn að íbúagarði þar sem íbúar á ólíkum aldri og ólíkum uppruna hittist og kynnist.
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/8161
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation