Gera einhvern róló veðurheldan Hægt að gera svipað og gróðurhúsahvelfingu, hægt að leita á neti eftir dome building, sun dome til að sjá hvað ég á við. Arkitektar geta fundið út úr rest :)
1 - Vil að byggt verði yfir rólóa t.d. Ljósheimaróló svo hægt verði að fara með lítil börn að leika á veturna án þess að frjósa fastur við bekki og að börn geti leikið sér án þess að vera í fimmföldum lögum af vetrarfatnaði. 2 - Myndi auka not á rólóum yfir vetrartímann 3- Auka hreyfingu barna 4 - Gjaldfrjáls samkomustaður í hverfinu - auka hverfatilfinningu og nágrannahitting
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7364
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation