Skólalóðin við Selásskóla er orðin verulega þreytt og þarfnast upplyftingar. Leiktæki eru gömul, of fá og ekki nægilega fjölbreytt. Það væri t.d. sniðugt að setja upp hreystibraut og/eða skemmtilegri og litríkari leiktæki. Elstu bekkingar skólans unnu skýrslu um aðstöðuna á síðasta ári þar sem kom fram skýr þörf á úrbótum! Hlustum á börnin og bjóðum þeim uppá þroskandi umhverfi í leik og starfi :)
Veruleg þörf á að bæta aðstöðu á skólalóðinni. Skólalóðin hefur mikla möguleika er stór og mikil en hefur fá og slitin leiktæki.
Skólalóðin við Selásskóla er orðin verulega þreytt og þarfnast upplyftingar. Leiktæki eru gömul og ekki nægilega fjölbreytt. Það væri t.d. sniðugt að setja upp hreystibraut og/eða skemmtilegri og litríkari leiktæki. Elstu bekkingar skólans unnu skýrslu um aðstöðuna á síðasta ári þar sem kom fram skýr þörf á úrbótum! Hlustum á börnin og bjóðum þeim uppá þroskandi umhverfi í leik og starfi :)
Mjög úrelt skólalóð hjá annars mjög góðum skóla við viljum úrbætur
Eitt af því sem mæti gera, er að taka þessa möl sem er út um allt á lóðinni í kringum leiktækin og setja þessar svörtu mjúku hellur í staðinn.
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7032
skólalóðin þarf að vera öruggt svæði fyrir börnin í leik t.d. á hjólum, hlaupahjólum og línuskautum, hellurnar eru skemmdar og grjót og steinar út um alla lóð, grindverk og gróður orðið frekar sjúskað og ljótt :/
Skólalóðin hefur mikla möguleika til þess að vera fjölbreytt og spennandi svæði, þó hún sé smá. Hún ber þess þó merki að það er langt síðan eitthvað var gert fyrir hana að ráði. Það er svo mikilvægt fyrir krakkana að hafa gott umhverfi því þau eyða svo miklum tíma í skólanum og kring um hann, og börnin í hverfinu sækja í svæðið utan skólatíma.
Leiktæki hafa verið fjarlægð án þess að nokkuð hafi komið í staðinn. Mjög dapurt ástand.
Afar döpur skólalóð með leiðinlegri möl og sjúskuðum leiktækjum.
Virkilega þörf á breytingum þarna, þessi aðstaða fyrir börnin er eiginlega til hálfgerðar skammar, en vonandi að þarna verði breyting á :)
Einnig finnst mér vanta reiðhjólastanda á skólalóðina fyrir reiðhjól barnanna.
Eitt af því sem mæti gera, er að taka þessa möl sem er út um allt á lóðinni í kringum leiktækin og setja þessar svörtu mjúku hellur í staðinn. Það skapast oft slysahætta þegar börn eru á hlaupum á skólalóðinni því steinarnir eru upp um allt á hellunum í kring um þessi leiktæki. Einnig finnst mér vanta reiðhjólastanda á skólalóðinni fyrir reiðhjól barnanna okkar.
Maður verður bersýnlega vör við hversu fátækleg skólalóðin er hvað varðar leiktæki og heildaryfirbragð þegar maður sér aðrar skólalóðir í bænum.
Bætt lóð myndi létta líf bæði skólabarna og starfsmanna. Eina breytingin á lóðinni sem ég hef tekið eftir síðustu ár eru leiktækin sem hverfa, það væri skemmtilegra ef hægt væri frekar að skipta út. Setja upp eitthvað nýtt í staðinn.
Veruleg þörf er á að bæta aðstöðu á skólalóð Selásskóla og sorglegt að horfa upp á að börn í Selásskóla njóti ekki svipaðrar aðstöðu og börn í öðrum skólum þar sem eru mun betri og fjölbreyttari leiktæki og önnur aðstaða. Þarna er verulegur munur á og orðið knýjandi að gera endurbætur, bæði hvað varðar leiktæki og annað eins og hellur, girðingar ofl.
Það vantar verulega ný leiktæki og bara að taka lóðina i gegn.Skemmd leiktæki hafa verið tekin en ekkert kemur í staðinn. Það er ekki hvetjandi til útiveru.
Mæli með að þeir sem taka ákvörðun geri sér ferð og kíki á skólalóðina, sjón er sögu ríkari! Hér er þörf á umbótum!
Strákurinn okkar brá á það ráð að renna sér niður brekku á hól sem er á skólalóðinni (var ekki snjór en hálfgerð drullurennibraut sem myndaðist í rigningunni). Starfsmenn skólans bönnuðu börnunum að gera þetta (enda eyðilögðu þau grasið). Þó ég sé ekki ósammála starfsmönnum skólans þá er þetta dapurleg staðreynd því þessi "drullurennibraut" var orðið eitt af afar fáum "leiktækjum" sem hægt var að nýta á skólalóðinni.
Sjón er sögu ríkari. Skólalóðin þarfnast verulegrar aðhlynningar. Vona innilega að þetta verkefni verði ofaná í þetta sinn.
Ps. myndin sem fylgir er af Seljaskóla (skilst mér), ekki Selásskóla :)
Veruleg þörf á endurnýjun á skólalóðinni. Við hvetjum börnin til leikja og hollrar útiveru, það vantar leiktæki fyrir þau. Svo má líka taka til og bæta mold í trjábeðin, klippa trén og snyrta.
Ef börnin okkar eru ekki það mikilvægasta í hverfinu, þá hvað? Þarna er góð lóð með mikla möguleika, en því miður galopin inn á götur og lítið um að vera sem gerir göturnar enn meira spennandi og hluta af leiknum. Fleiri og fjölbreyttari leiktæki og nokkrar girðingar til að setja mörkin á skólalóðinni skýr er mikilvægt fyrir öryggi barnanna okkar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation