Beygjuljós á gatnamótum Skeifunnar og Grensásvegar
Að þarna sé nú ekki þegar beygjuljós er fáranlegt! Gangandi vegfarendur eru í stórri hættu við að ganga þarna yfir þrátt fyrir að vera á grænu ljósi. Þarna er mikil umferð og það er nauðsynlegt uppá umferðaröryggi að setja beygjuljós!
Stórhættuleg gatnamót og löngu tímabært að grípa til aðgerða á þessu svæði.
Huga þarf að öryggi gangandi vegfarenda á þessum gatnamótum
Stóraukið umferðaröryggi. Ítrekað safnast upp löng bílaröð á ljósunum þar sem ökumenn freista þess að beygja til suðurs inn á Grensásveginn úr Skeifunni þrátt fyrir stöðuga umferð til austurs frá Fellsmúla inn í Skeifuna. Sérstök hætta skapast fyrir þá sem hyggjast beygja til vesturs af Grensásvegi út á Miklubrautina en verða innlyksa vegna bíla sem koma úr austurátt og beygja inn á Grensásveginn til suðurs en hyggjast beygja til austurs út á Miklubraut.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation