Rífa stórbyggingar við v.Ingólfstorg og opna upp í grjótaþ.
Þetta myndi stækka miðbæinn og við myndum eignast alv0ru downtown en ekki einhvern bastarð með roki
Hljómar vel í mínum eyrum þó svo að öðrum þyki þetta kannski ógáfulegt. Mætti þá gjarnan setja niður einhver gömul hús í stað þeirra sem að færu. Einhver lágreist, falleg og vinaleg hús í anda grjótaþorpsins.
Stórhýsin við vestanvert Ingólfstorg hafa löngum verið lýti í elsta borgarkjarnanum - og svo nærri elsta húsi borgarinnar. Eftir að torgið var að stórum hluta hótelvætt og hótelrekstur færðist í gömlu Morgunblaðshöllina og hús Tryggingarmiðstöðvar hefur umferð stóraukist í Aðalstræti og ruslagámar hlaðist upp í Grjótaþorpinu sem er ekki notalegt fyrir íbúa þar. Nú eru uppi áform um enn eitt hótelið við torgið, risahótel í dýrmætasta almannarými borgarbúa. Ég styð því allar góðar hugmyndir sem miða að því að setja gömlu húsin í Grjótaþorpinu í forgang, vernda gömlu húsin við Vallarstræti og Ingólfstorg og lyfta upp þeim menningarverðmætum sem í þeim felast.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation