Vinsamlega veitið EKKI leyfi fyrir Færeyja- og Grænlandsflugi á Reykjavíkurflugvöll, - rökin sem voru færð vegna sjúkraflugs og aðgengi að stofnunum getur ekki átt við millilandaflug, þetta flug hlýtur að eiga heima á Keflavíkurflugvelli eins og annað millilandaflug - nóg er nú samt hér í miðri Reykjavík af hávaða- og lyktarmengun frá flugvellinum!! Vinsamlega sendið áfram ef þetta á ekki heima hjá ykkur:) veit ekki alveg hvert ég á að snúa mér með þetta mikilvæga mál.
Ótrúlega mikil mengun í hjarta okkar góðu Reykjavíkurborgar af flugvellinum, fyrst og fremst hávaðamengun, einnig ótrúleg lyktar (olíu)mengun og svo auðvitað sjónmengun (gráminn í algleymi), við hljótum að geta notað Keflavíkurflugvöll og alla þá aðstöðu, ekki síst nú eftir að herinn fór, - nýjar lausnir í samgögnum gera ekkert mál að hafa innanlandsflugið líka þar, fólk þarf bara að venjast því eins og öðru.
Merkilegt að bent sé á mengun bæði á loftgæðum og hávaða. Spurning hvaða mengun fyglri 50 þúsund manns og bílunum þeirra á þessu svæði fari flugvöllurinn. Menn halda að umferðin sé þung á Miklubraut í dag?
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation