Hugmynd hvort byggja mætti veitingahús við Árbæjarlaug með útsýni yfir fótboltavöll og Elliðaár svæðið. Mætti gjarnan bjóða upp á hollar og léttar veitingar. Þarna gæti fólk notið endurnærandi veitinga og notið yndislega útsýnis.
Bæði vantar veitingastað á þetta svæði og síðan er það með betri útsýnisstöðum. Það eru margir sem stunda íþróttir inni og úti í og við Árbæjarlaug og gætu vafalítið haft gagn og gleði af hollum og góðum veitingum sem deila mætti með vinum og fjölskyldu í fallegu umhverfi.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation