Læk í Lækjargötu
Rennandi vatn í miðborginni myndi gera hana fallegri og fólksvænni. Það þarf heldur ekki að vera svona mikil bílaumferð í Lækjagötu. Þessi gata býður upp á að vera mun fallegri en hún er í dag. Lækurinn er til staðar undir götunni ekki satt? Það sama var gert í Árósum í Danmörku fyrir nokkrum árum borginni til mikillar prýði.
Þetta er Æði !
sjá sama málefni hér: http://betrireykjavik.is/priorities/1315-laekjargata-umferd-sett-nidur-i-stokk-laekurinn-a-yfirbordid
Bílamengunin í miðbænum er orðin svo hræðileg að fólk með astma á orðið erfitt með að fara þar um. Vistkerfi tjarnarinnar er orðið svo ófélegt að ungar komast ekki á legg. Svo yrði þetta svo fallegt og skemmtilegt.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation