Að strætó byrji að ganga klukkan 10 á Sunnudagsmorgnum
Mér finnst eins og það sé ekkert tekið tillit til þeirra sem þurfa að sleppa vinnu snemma á sunnudagsmorgni, vegna þess hve strætó byrjar að ganga seint á sunnudögum, eða kl 12, sem er aðeins of seint. Mér finnst að strætó ætti frekar að byrja klukkan 10 á sunnudögum. En hvað finnst ykkur hinum?
Engin spurning að það er fáránlegt fyrir okkur sem rekum ekki bíl, að ekki sé hægt að taka strætó fyrir hádegi. Nú er ein hér á heimilinu sem kemst aldrei til vinnu fyrr en kl 12 á sunnudögum, þarf alltaf að skipta vaktinni sem annars á að hefjast kl 11
Mjög margar verzlanir eru opnaðar kl. 10:00 , starfsfólkið þarf að vera mætt þá. Sem þýðir að strætó þarf að byrja síðasta lagi kl 9:30.
Nákvæmlega.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation