Tæki til líkamsræktar staðsett úti á grænum reit t.d. við hlið Ártúnsskóla. Tæki til að æfa jafnvægi og lyftingar.
Tæki fyrir almenning til að stunda líkamsrækt án þess að borga stórfé í líkamsræktarstöð. Heillaðist af slíku svæði í Kína þar mikill fjöldi fólk fór úr á milli tækja og æfði sig.
Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Frábær leið til heilsueflingar í hverfinu!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation