Á sumrin má hver sem er halda markað á Austurstræti
Það er gaman að sjá mikið fólk niðri í bæ! Og það er gaman að útimörkuðum. Hægt væri að hafa til taks borð til leigu fyrir skikkanlegt verð ( t.d. í Hinu húsinu ). Fólk gæti svo sett upp bása á góðviðrisdögum á Austurstræti og boðið þar til sölu ýmsan varning. Mikil ásókn hefur verið í Kolaportið undanfarið, bæði af fólki sem vill selja og fólki sem vill kaupa, en básarnir þar eru orðnir mjög dýrir. Þetta myndi svo sannarlega lífga upp á miðborgina á fallegum góðviðrisdögum.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation